top of page

Umhverfisáætlun:

Fagurverk mun hefja kolefnisjöfnun árið 2027 með því að gróðursetja tré árlega í samráði við útreikninga á útblæstri félagsins.

Fagurverk hefur á stefnu sinni að fjölga raf/tvinnbílum í sínum flota árið 2026. Einnig er á stefnu félagsins að yngja upp í flota félagsins og leitast eftir ökutækjum sem hentar starfseminni jafnt og umhverfinu.

 

Allur úrgangur er losaður á viðurkennda losunarstaði, flokkun á úrgangi er brýnt fyrir starfsmönnum reglulega. Jarðefnaúrgangur í verkum skal reyna að nýta eftir fremsta megni, ef ekki er hægt að nýta jarðefna úrgang er hann losaður á viðurkenndum losunarstað.

 

Brýnt er fyrir starfsmönnum að draga úr lausagangi ökutækja og vinnuvéla. Óþarfa keyrsla sé minnkuð og að starfsmenn reyni að samnýta ökutæki.

Öryggis -og Gæðamál:

Stjórnendur Fagurverks hafa í algerum forgang að tryggja að starfsmenn félagsins komi heilir heim úr vinnu alla daga. Þetta er gert með því að mæta öllum lagalegum og samningsbundnum kröfum verkkaupa. Öllu starfsfólki fyrirtækisins ber að fylgja verklagsreglum fyrirtækisins, leiðrétta og tilkynna brot á reglum. 

 

Notkun spillandi efna er ávalt undir ströngu eftirliti frá tilgreindum umsjónarmanni sem skal tryggja að efnin sé rétt geymd, notuð og fargað samkvæmt kröfum framleiðanda og gildandi reglugerðum. Ef um mengunarslys er um að ræða skal tilgreindur umsjónarmaður tryggja öryggi, að efni sé hreinsað upp samkvæmt verklagi og tilkynna viðeigandi aðilum um mengunarslysið.

 

Okkar helsta markmið er að koma í veg fyrir slys á fólki, umhverfi og dýrum ásamt því að stuðla að heilbrigði í vinnu.

© 2026 Fagurverk     I     fagurverk@fagurverk.is     I     Sími : 571-8060     I     Hamarshöfði 2, 110 Reykjavík

bottom of page